AirPlay
Tækin frá Apple nota ákveðna tækni sem nefnist AirPlay til að senda efnið sem er á skjánum á einu tæki þráðlaust yfir í t.d. skjávarpa, sjónvarp, hátalara eða tölvuskjá.
Vinsælt er að koma AppleTV fyrir í fundarherbergjum og stofum þar sem starfsmenn skiptast á að senda efni af tækjunum sínum upp á skjáinn.
AirPlay tæknin er einföld í notkun og kemur í veg fyrir þann biðtíma sem fer í að mynda tengingu við skjái með snúru og einfaldar því flæðið fundarins til muna.
Með nýjustu stýrikerfisuppfærslunni þarf ekki lengur að tengjast þráðlausu neti til að nýta sér AirPlay tæknina heldur geta líka gestir og utanaðkomandi aðillar tengst þráðlaust með því einu að vera í sama herbergi.
Losaðu þig við þræðina svo þú getir einbeitt þér að þeim verkefnum sem skipta máli.

